Leyfisskilmálar
Síðast uppfært: 1. ágúst 2026
Skilmálar þessir („Skilmálarnir“) gilda um hugbúnaðarleyfi sem Grammatek ehf., kt. 641018-0820, Fjólulundi 4, 300 Akranesi („Grammatek“, „við“) gefur út fyrir hugbúnað félagsins, þar á meðal Símaróm og Lesling („Hugbúnaðurinn“), þegar leyfi eru keypt utan almennra smáforritaverslana - til dæmis í gegnum leyfisgátt okkar fyrir fyrirtæki og stofnanir, með sérstökum samningi eða í kynningarátaki.
Hafir þú keypt Hugbúnaðinn eða áskrift beint í App Store frá Apple, Google Play eða í Microsoft Store gilda skilmálar viðkomandi verslunar um þau kaup.
Leyfisgátt okkar er ætluð lögaðilum (svo sem skólum, sveitarfélögum og fyrirtækjum). Kaupi neytandi engu að síður leyfi í gegnum gáttina gilda ófrávíkjanleg ákvæði neytendalöggjafar að því marki sem þau eru neytandanum hagstæðari en Skilmálarnir.
Skilmálarnir eru gefnir út á íslensku og ensku. Komi upp misræmi milli útgáfna gildir íslenska útgáfan.
1. Skilgreiningar
- Leyfi - réttur til að virkja og nota einn eða fleiri eiginleika Hugbúnaðarins, takmarkaður við hámarksfjölda Virkjana og tiltekinn gildistíma.
- Leyfishafi - sá lögaðili eða einstaklingur sem aflað hefur Leyfis frá Grammatek (t.d. skóli, sveitarfélag eða fyrirtæki).
- Virkjun - það ferli að gera leyfisskylda eiginleika virka á einu tæki, annaðhvort með því að skanna QR-leyfiskóða eða með stýrðri forritsstillingu (managed app configuration) sem Leyfishafi dreifir í gegnum tækjastjórnunarkerfi (MDM).
- Notandi - einstaklingur sem notar Hugbúnaðinn á tæki sem virkjað hefur verið undir Leyfi Leyfishafa.
2. Samningsstofnun
Samningur milli Leyfishafa og Grammatek telst kominn á þegar pöntun hefur verið staðfest í leyfisgáttinni eða Grammatek hefur staðfest pöntun skriflega. Sá sem stofnar til Leyfis fyrir hönd lögaðila ábyrgist að hann hafi umboð til að skuldbinda þann aðila.
3. Leyfisveiting
Með fyrirvara um Skilmálana og greiðslu umsaminna gjalda veitir Grammatek Leyfishafa tímabundinn, óframseljanlegan rétt, án einkaréttar, til að virkja og nota leyfisskylda eiginleika Hugbúnaðarins á þeim fjölda tækja sem tilgreindur er í viðkomandi pöntun, samningi eða kynningartilboði.
Umfang hvers Leyfis - leyfðir eiginleikar (t.d. Símarómur, Leslingur eða hvort tveggja), hámarksfjöldi Virkjana fyrir hvern eiginleika, gildistími og verð - er tilgreint í þeirri pöntun, samningi eða kynningartilboði sem Leyfið byggist á. Sé misræmi milli Skilmálanna og sérstaks samnings gengur sérstaki samningurinn framar.
4. Virkjun og tækjastjórnun
Leyfi eru virkjuð á hverju tæki fyrir sig. Leyfishafi getur virkjað tæki með því að afhenda Notendum QR-leyfiskóða eða með því að dreifa leyfislyklinum með stýrðri forritsstillingu í gegnum MDM-kerfi.
Leyfishafa ber að halda leyfiskóðum innan eigin starfsemi og tryggja að Virkjanir séu aðeins nýttar á tækjum á hans vegum eða á vegum Notenda hans. Grammatek er heimilt að ógilda leyfiskóða sem hafa verið birtir opinberlega eða notaðir umfram umsamið umfang og gefur þá út nýja kóða til Leyfishafa í staðinn.
Heimilt er að losa Virkjanir og endurúthluta þeim á önnur tæki þar sem samningur Leyfishafa kveður á um það, eða með því að hafa samband við þjónustuver Grammatek.
5. Gildistími, lok og endurnýjun
Hvert Leyfi gildir þann tíma sem tilgreindur er við útgáfu þess (til dæmis tólf mánuði frá virkjun eða til fastrar lokadagsetningar). Leyfisskyldir eiginleikar verða sjálfkrafa óvirkir þegar Leyfi rennur út. Ekki þarf sérstaka uppsögn eða tilkynningu.
Endurnýjun skal taka beint við af gildistíma fyrra Leyfis, þannig að nýtt leyfistímabil hefst um leið og hið fyrra rennur út. Leyfi sem keypt er eftir að fyrri gildistími er liðinn telst ný kaup en ekki endurnýjun.
Við endurnýjun eða ný kaup eru fyrri Virkjanir endurvirkjaðar sjálfkrafa þar sem því verður við komið, þannig að ekki þarf að setja tækin upp að nýju.
6. Kynningarleyfi
Grammatek getur gefið út ókeypis kynningarleyfi eða leyfi á sérstökum kjörum (til dæmis prufuleyfi sem gildir í einn mánuð frá virkjun eða til fastrar dagsetningar). Kynningarleyfi eru veitt í því ástandi sem þau eru, þau má takmarka eða afturkalla hvenær sem er, þau veita ekki rétt til endurnýjunar á sömu kjörum og þau má hvorki endurselja né dreifa áfram.
7. Gjöld og greiðslur
Gjöld, reikningagerð og greiðsluskilmálar eru tilgreind í viðkomandi pöntun eða samningi. Nema um annað sé samið eru reikningar á gjalddaga innan 14 daga. Grammatek er heimilt að fresta útgáfu nýrra Virkjana til leyfishafa sem eru með gjaldfallnar skuldir.
8. Notkunartakmarkanir
Leyfishafa og Notendum er óheimilt að:
- deila, birta, selja eða framselja leyfiskóða eða QR-kóða út fyrir starfsemi Leyfishafa;
- sniðganga eða reyna að sniðganga virkjunartakmörk eða gildislok Leyfa;
- vendismíða (e. reverse engineering), afþýða (e. decompile) eða breyta Hugbúnaðinum, nema að því marki sem ófrávíkjanleg lög heimila;
- nota Hugbúnaðinn til að þróa vöru í samkeppni við hann.
9. Vélrænar niðurstöður og ábyrg notkun
Hugbúnaðurinn framleiðir vélrænar niðurstöður, svo sem talgervingu og textagreiningu (OCR). Slíkar niðurstöður geta innihaldið villur eða ónákvæmni. Leyfishafi og Notendur bera ábyrgð á að yfirfara niðurstöður með tilliti til nákvæmni og þess hvort þær henti fyrirhugaðri notkun áður en byggt er á þeim. Óheimilt er að nota niðurstöður einar og sér sem grundvöll ákvarðana sem hafa réttaráhrif eða önnur veruleg áhrif á einstakling.
Raddir Hugbúnaðarins byggjast á upptökum raunverulegra raddgjafa sem hafa veitt leyfi fyrir notkun raddar sinnar til talgervingar. Óheimilt er að nota niðurstöður til að líkja eftir raddgjöfunum eða öðrum raunverulegum einstaklingum, til að vekja þá trú að raunveruleg manneskja hafi sagt eitthvað sem hún sagði ekki, eða til að gefa í skyn stuðning eða þátttöku einstaklings. Öll notkun niðurstaðna til blekkingar, svika, ærumeiðinga eða áreitni er óheimil.
10. Þjónusta og aðgengi
Virkjun Leyfis krefst nettengingar við leyfisþjón Grammatek á virkjunartíma. Eftir virkjun starfa tæki óháð leyfisþjóninum. Leyfisþjónninn er umsýslutól en ekki netþjónusta í samfelldum rekstri; Grammatek leitast við að halda honum aðgengilegum en ábyrgist ekki tiltekið aðgengisstig. Tímabundnar truflanir teljast ekki galli og veita hvorki rétt til afsláttar, bóta né uppsagnar. Verði virkjun ómöguleg um lengri tíma vegna sambandsleysis við leyfisþjóninn framlengir Grammatek viðkomandi Leyfi sem því nemur eða býður aðra leið til virkjunar, og er það eina úrræði Leyfishafa.
Þjónusta er veitt tilnefndum tengilið Leyfishafa (t.d. kerfisstjóra). Nema um annað sé samið veitir Grammatek ekki beina þjónustu við einstaka Notendur vegna stofnanaleyfa.
11. Kerfi þriðju aðila
Hugbúnaðurinn keyrir á tækjum og stýrikerfum þriðju aðila (t.d. Apple iOS og Google Android) og byggist á tæknilegum viðmótum þeirra, svo sem talgervils- og aðgengisviðmótum stýrikerfa. Þessi kerfi eru utan áhrifasviðs Grammatek. Grammatek ábyrgist hvorki að Hugbúnaðurinn verði áfram samhæfður framtíðarútgáfum stýrikerfa þriðju aðila né að rekstraraðilar þeirra bjóði áfram þau viðmót sem Hugbúnaðurinn þarfnast.
Kerfiskröfur Hugbúnaðarins - þar á meðal studdar útgáfur stýrikerfa - koma fram í samhæfnilista sem Grammatek birtir og uppfærir eftir þörfum. Leyfishafi ber ábyrgð á að nota Hugbúnaðinn í studdu umhverfi. Notkun Hugbúnaðarins á stýrikerfisútgáfum sem ekki eru tilgreindar sem studdar - þar á meðal útgáfum sem ekki eru lengur studdar, útgáfum sem enn hafa ekki verið studdar og útgáfum sem eru undanskildar vegna þekktra galla í stýrikerfinu sjálfu - er á eigin ábyrgð Leyfishafa og skerðing af þeim völdum telst ekki galli. Grammatek getur birt tilkynningar um samhæfni (til dæmis tilmæli um að fresta stýrikerfisuppfærslu) og leitast við að styðja nýjar stýrikerfisútgáfur innan hæfilegs tíma frá útgáfu þeirra.
Ef breyting á kerfi þriðja aðila skerðir leyfisskyldan eiginleika leitast Grammatek við að lagfæra hann með uppfærslu eða annarri lausn. Tímabundin skerðing af slíkum völdum telst ekki galli og veitir ekki rétt til bóta.
Verði leyfisskyldur meginþáttur varanlega ónothæfur á tækjum Leyfishafa vegna slíkrar breytingar, og engin raunhæf lausn er tiltæk, getur Leyfishafi sagt upp viðkomandi Leyfum og fengið endurgreidd fyrirframgreidd gjöld í hlutfalli við þann leyfistíma sem eftir stendur, og er það eina úrræði Leyfishafa.
12. Hugverkaréttindi
Hugbúnaðurinn, þar á meðal allar raddir, líkön og tengt efni, er og verður eign Grammatek og rétthafa þess. Skilmálarnir veita eingöngu afnotarétt; engin eignarréttindi eða önnur réttindi flytjast til Leyfishafa.
13. Persónuvernd
Vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við Hugbúnaðinn og leyfisþjónustuna er lýst í persónuverndarstefnu okkar. Við virkjun eru unnin tæknileg auðkenni sem nauðsynleg eru til að framfylgja virkjunartakmörkum; Notendur þurfa ekki að stofna persónulega aðganga.
14. Ábyrgð og ábyrgðartakmörkun
Grammatek ábyrgist að Hugbúnaðurinn samræmist í meginatriðum lýsingu hans. Að öðru leyti er Hugbúnaðurinn afhentur án frekari ábyrgða, að því marki sem lög leyfa. Leyfishafi skal tilkynna Grammatek um galla án ástæðulauss dráttar eftir að þeir uppgötvast.
Heildarábyrgð Grammatek á tjóni vegna Leyfis takmarkast við þann hluta gjalda fyrir viðkomandi Leyfi sem svarar til þeirra Virkjana sem urðu fyrir áhrifum og til þriggja mánaða fyrir það atvik sem krafa byggist á. Grammatek ber ekki ábyrgð á óbeinu eða afleiddu tjóni, þar með töldu rekstrartapi, nema um ásetning eða stórfellt gáleysi sé að ræða eða þar sem ábyrgð verður ekki takmörkuð samkvæmt lögum.
15. Óviðráðanleg atvik
Grammatek ber ekki ábyrgð á vanefndum eða töfum sem rekja má til atvika utan eðlilegrar stjórnar þess, svo sem náttúruhamfara, styrjalda, verkfalla, stjórnvaldsaðgerða eða truflana á fjarskipta- eða netþjónustu. Skyldur frestast á meðan slíkt atvik varir. Vari atvik lengur en 30 daga getur hvor aðili um sig sagt viðkomandi Leyfi upp með skriflegri tilkynningu; greiðsluskylda vegna þjónustu sem þegar hefur verið veitt helst óbreytt.
16. Framsal
Grammatek getur framselt réttindi sín og skyldur samkvæmt Skilmálunum til annars lögaðila, enda hafi það ekki áhrif á réttindi Leyfishafa og honum sé tilkynnt um framsalið. Leyfishafi getur aðeins framselt réttindi sín með skriflegu samþykki Grammatek.
17. Breytingar á Skilmálunum
Grammatek getur uppfært Skilmálana fyrir ný Leyfi og endurnýjanir. Sú útgáfa sem er í gildi þegar Leyfi er gefið út gildir um það Leyfi allan gildistíma þess. Verulegar breytingar verða kynntar virkum Leyfishöfum.
18. Gildandi lög og varnarþing
Um Skilmálana gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur sem ekki tekst að leysa með samkomulagi milli aðila skal mál rekið fyrir Héraðsdómi Vesturlands, nema ófrávíkjanleg lög kveði á um annað.
19. Samskipti
Grammatek ehf.
Kt. 641018-0820
Fjólulundi 4, 300 Akranesi
Netfang: info@grammatek.com