Nú hefur ljóslestursvirkni (OCR) verið bætt við Símaróm fyrir iOS. Skannaðu texta af blaði eða bók og fáðu hann lesinn samstundis upphátt!

Með ljóslestursmyndavél Símaróms getur þú til dæmis rammað inn þann texta sem þú vilt fá lesinn, leiðrétt sjónarhorn og látið lesturinn hefjast hvar sem er með því að benda á stað í textanum.

Í tilefni af þessari uppfærslu höfum við sett vefsíðuna simaromur.is í loftið!

Ljóslestursviðbót Símaróms var styrkt af Skerfi, hagnýtingarsjóði í máltækni.



Sækja Símaróm fyrir iOS: